jæja þá er nú bara best að prófa hvort ég sé að verða eins tæknivædd og þið hinar. En héðan á klakanum er sko bara allt fínt að frétta. Sumarið bara næstum komið. Ég og Dröfn áttum alveg brilljant laugardag, rölltum laugarveginn og sátum úti á vegamótum. Þetta var bara alveg eins og að vera í útlöndum (betra ef ég miða við síðustu ferð þar sem ég lenti nú bara í snjóstormi). En þetta var brill ;-) ég var nefninlega allt í einu barnlaus og frjáls. Hefur ekki gerst í lengri tíma að ég sé bara að dúlla mér á laugardegi. Síðan hittumst við aftur um kvöldið og sötruðum nokkra bjóra og skipulögðum föstudaginn. Við erum semsagt búnar að setja niður matseðilinn og ákveða þema. Fórum á flug .. vona að þú veriðr ekki fúl sigrún mín ... ekki illa meint .. heat of the moment thing! En þemað á föstudagskvöldið er sem sagt - sumar fílingur - það á sem sagt að vera í litríkum sumarfötum og á bann lista eru svartar buxur... hehe verðum að reyna að hafa þetta svoldið ögrandi. En góða skapið er samt náttla það sem skiptir mestu máli.
Ég er sko komin í góðan fíling og hlakka til endurfundana
Engin ummæli:
Skrifa ummæli