mánudagur, desember 04, 2006

Kveðja frá London

Nú er kominn tími til að ég láti sjá mig á þessari síðu. Hér í London er ekkert orðið neitt svakalega jólalegt, enginn snjór eða kuldi og voða lítið skraut annars staðar en á Oxford Str. Ég er ekki einu sinni búin að setja upp aðventukransinn! Ég ætla samt að vinna í því að komast í jólaskap í vikunni og henda inn nokkrum jólalögum á iPodinn og baka eina sort áður en Steinunn mætir á svæðið á föstudag.

Ég er orðin vel heit fyrir sex&city þemanu með kokteilunum og kjólunum. Enda mun auðveldara að koma jólakjólnum í ferðatöskuna heldur enn kúreka eða mexícana hattinum. Það eru líka allt of fá tilefni sem maður fær til þess að dressa sig upp í kjól þessa dagana. Væri nú gaman að hafa smá pakkaskipti líka og þá bara hafa pakkana líka pæjulega til að passa við þemað! Er bara orðin ansi spennt. Ætli þetta verði ekki bara hápunktur jólanna í ár :o)

Bis später,
EB

föstudagur, desember 01, 2006

Jólastemming á fullveldisdaginn

Það er verið að kveikja á jólatrénu út í garði hjá mér. Ómur af jólalögum heyrist inn um gluggan hjá mér. Ég kíki út og öll börnin í blokkinn ganga í kringum jólatréið og syngja jólalög. Nú væri gaman að vera áhyggjulaus og njóta aðventunar.
Svo eftir það er boðið upp á eplaskífur og jólaglögg. Ætla að segja pass í ár, fór í fyrra- yndisleg stemming. Ætla frekar að fara í jólaglöggið á morgun.

fimmtudagur, nóvember 30, 2006

þemað þann 29 des


Ótrúlega spennandi þemu sem þú fannst uppá Steinunn, mikið kannast ég við það að hugsa um allt annað en um lærdóm fyrir próf...

Varðandi Sex in the city, þá verð ég að segja að það hljómar geðveikt en ég á engan kjól...
Mexí-þemað er afar hentugt, hressleiki í fyrirrúmi ásamt suðrænum og svalandi margarítum...
Jólaglögg er í takvið tíðarandann og alltaf gaman, hátíðlegt og "true to the spirit of christmas". Er samt ekki viss um að ég vilji drekka mig eins fulla af jólaglöggi og ég get á margarítum... hehe
Bláa lónið er freistandi, en meira freistandi er að vera inni og hlýja sér við ofninn, sérstaklega ef við tökum uppá því að elda saman (ekki það að það einfaldi allt að sleppa matnum)...
oG svo er það Yatzi-ið. Það er náttúrulega bara snilld, klikkar aldrei!
Ég legg til að við kjósum um þetta og stefnum á brillíant kvöld með okkur öllum 6.

Ég kýs í eftirfarandi röð:

1)Sex and the city þema? Cosmopolitan drykkir og við allar dannaðar dömur í kvöldkjólum - nema Sigrún
2)Jólaglögg ? Allir koma með einn pakka og höfum pakkaskipti ( litlu jólin eftir á)
3)Mexícost þema ? Stawberry margaritur og við klæðum okkur í takt við það.
3)Ármótaþema - taka forskot á sæluna.
4)Bláa lónið, fá einhvern til að keyra og sækja okkur .....

Ekki nema við höfum bara blandaða þemu, eftir okkar eigin höfði!!

Gætum hisst um 20:00 og startað teitinu upp því frekar snemma?
Mig hlakkar strax til!!

þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Læra, læra, læra

Þessa dagana á ég mér ekkert líf. Skólinn og bækurnar eiga mig þessa dagana.
En þessari törn lýkur sem betur fer á miðvikudaginn næsta . Get ekki beðið : )

Bara langaði til að deila þessu með ykkur

sunnudagur, nóvember 26, 2006



Sælar aftur...
Tók mér bessaleyfi að uppfæra útlitið hja okkur í aðeins vetrarlegri búning...
Þið megið endilega breyta og bæta líka, en allir eiga að hafa administration réttindi svo þið getið leikið ykkur eins og ykkur lystir:)

Ef þið viljið að ég breyti einhverju látið mig þá bara vita, eins ef það eru einhverjir linkar sem ykkur finnst að mætti setja inn, eins og með ykkar áhugamálum, bloggi einhverra sem þið þekkið eða eitthvað...

Nóg af þessu proquestination... best að vinda sér aftur í skólabækurnar... veiii

over and out- sb

Mr Bond...



Eins og þið kannski vitið þá fór mín á nýjustu Bond myndina í gær. Allavegana ég vildi bara láta ykkur vita stelpur að loksins er komin James Bond mynd sem við stelpur fílum. Ekki nóg með kroppasýninguna heldur er kallinn bara nokkuð rómó í þessarri mynd, áður en hann breytist í kuldabolann og kynlífssjúkann Bondinn sem við flest þekkjum.
Þetta er því tilvalið tækifæri fyrir ykkur stelpur að bjóða karlinum ykkar út í bíó á þessa mynd, þykjast vera ofsa næs að nenna fara á Bond með honum þegar í rauninni það er allt með ráðum gert...

þriðjudagur, nóvember 21, 2006

Alltaf fullar:)

Sælar stúlkur.

Loksins að maður lætur til skarar skríða á þessum vef. Eins og þið hafið eflaust tekið eftir þá hef ég varið litlum part tíma míns í að blogga þessa önnina. Ég er greinilega svona dugleg í skólanum... hehe

Spurt er hvenær ég sé væntanleg á klakann og það mun vera þann 15.des að öllum líkindum. Ég er í veseni með sjúkrapróf, veit ekki enn hvenær það verður dagsett, svo ég krossa bara puttana uppá að það verði ekki fyrr en í janúar.
Ég á eftir að bóka mér far heim, en satt að segja væri best fyrir mig að fara snemma, enda væntanlega 2 próf í jan. Málið er að það er bara svolítið dýrt að fljúga svo snemma svo ég hef ekki hugmynd um það hvenær ég kemst heim aftur...

Annars er allt gott að frétta héðan, það er nú ekki eins magnað vetrarveður hér og hjá ykkur á klakanum, sem virðist bera nafn með réttu þessa dagana.


Við Steinunn erum í ágætis törn núna, verkefni og kynningar hjá mér og endalaus próf hjá henni, en það stoppaði okkur ekki síðasta fimmtudag í að skella okkur út með hinum dömunum hérna á "konukvöld" að okkar hætti. Byrjaði með mat og endaði á kokteilabar... óþarfi að útskýra hressleikann sem hrjáði okkur daginn eftir. Vaka var svo skemmtilega á landinu svo hún tók þátt í vitleysunni með okkur.

Eins og þið sjáið þá fór enginn þyrstur heim:)

Vona að þetta sé spark í rassinn á tilvonandi ferðalöngum sem ætla leggja land undir fót og kíkja við í danaveldi í febrúar. Það skortir sko ekki "aktivitet" hér hjá okkur:)

Annars þá ætla ég ekki að hafa þetta lengra, vona að þið séuð ekki að deyja úr vosbúð þarna á gamla Fróni.
Þangað til næst!!!

(p.s hvernig væri svo að segja okkur frá lífinu heima við, okkur finnst alltaf gaman að heyra hvernig gengur og hvað er að frétta. Svo verðið þið að fara planleggja ferðina!!).

föstudagur, nóvember 10, 2006

Já og Sigrún
Það væri nú gaman að heyra í þér oftar. Ég vona að þú hafir það gott og massir prófin Hvenær kemuru annars á klakann í jólastemninguna?? hlakka til að sjá þig

Undur og stórmerki

JÆJA

Hvað haldið þig... Ég er bara búin að koma mér hingað inn svona til þess að heilsa upp á ykkur. Ég gat þetta og reynar var það minna mál en mig grunaði. En ég er semsagt í gati í skólanum (hehe og ég er kennarinn) og ég hugsaði með mér; En hvað það er langt síðan eg hef nú heyrt í stelpunum. Svo ég ákvað að nýta mér tæknina og athuga hvernig það gegni að vera með svona sameiginlega blogg síðu.
Allavega þá hef ég það bara mjög gott núna. Er að losna við haustslenið sem hefur verið að hrjá mig og er að komast á fullt skrið núna. Sem ætti að sjást fyrst ég er komin hingað inn.

Ég er svo líka komin í þetta mikla jólaskap. Var einmitt að hugsa um hvað og hvort ég ætti að baka. Hvenær má maðuru fara að setja upp jólaskraut án þess að fólk haldi að mar sé klikkaður??

Ætlli þetta dugi ekki í bili .. má nú ekki ofgera ykkur með tilraunum mínum með fídusana hérna.

HOHO /(med trinidad hreim)
Þurý

föstudagur, október 20, 2006

Kerlur �krapinu

er þetta eitthvað að funkera hjá mér....alhoa

miðvikudagur, ágúst 16, 2006

Menningarnótt

Matur hjá Dröfn, ölæði og önnur gamanmál fram eftir kvöldi með léttri syrpu niðrí bæ og öldurhús miðbæjarins. Menning drekkist í sig um leið....

fimmtudagur, ágúst 03, 2006

Bústaður á lausu!

Sælar elskurnar, heyrru ég var búin að fá bústað á leigu við Svínavatn (40 mín héðan) æðislegan með öllu nema rúmfötum, pottur og gasgrill!
Kostar 18 þús vikan en málið er að ég kemst ekki. Þetta er frá föstudegi 25 ágúst til 1 sept og ég vildi bara tékka ef þið hefðuð áhuga á að nýta ykkur hann áður en ég hafna honum. Þetta er leigt í gegnum Decode og ég var ofsalega heppin að fá hann, en málið er bara það að ég hef það mikið að gera og plús það að Ingi þarf að mæta í skólann á mánudegi og miðvikudegi að við erum ekki alveg að sjá þetta ganga. Frekar ætlum við að fara fyrr heim ef það er hægt.

Fljótar að svara ef þið hafið áhuga, ég losa mig við hann á morgun annars!!!

Kv sb

þriðjudagur, júlí 18, 2006

Hæ skvísur

Hæ hæ stelpur

Ætlaði að vera löngu búin að póst einhverju hérna inn en .....
Ég er til í að hittast helgina 18-19 ágúst. Hvað með að reyna að hittast á kaffihúsi einhvern tíman á virkum degi?
Annars er allt ágætt að frétta af mér - vorum að koma úr veiði þar sem ég náði maríulaxinum og svo 4 í viðbót - alls slæmt af byrjanda.

kv. SBZ
jæja, enn gerist ekkert á þessari bloggsíðu, en við anna erum þó lang duglegastar að kommenta:)

vildi bara láta vita að það er þétt plan næstu helgar en ég á eina lausa eftir, þ.e helgina 18-19 ágúst....

eigum við að negla einhver plön?

KV SB

mánudagur, júlí 17, 2006

Sumarfrí?

Halló stelpur
Hvað segið þið gott? Það er svo langt síðan ég hef heyrt í ykkur.
Ég fór í hálskirtlatöku 12.júlí og er búin að vera heima síðan þá.
Dagurinn fer í að taka fljótandi verkjalyf og reyna að borða eitthvað.
Annars erum við Elísa komnar í sumarfrí, væri alveg til í að fara norður
eða einhvert næstu helgi en efast um að við förum nokkuð. Kannski er
best að ná heilsu fyrst og síðan að athuga með annað.
Hvað er að frétta og hvað á að gera næstu helgi?

miðvikudagur, júlí 12, 2006

jæja þá fer ég að fara gefa mér tíma í að uppfæra þennan vef og koma honum í gangið hjá okkur. Þetta verður vonandi vel nýttur vefur því mér finnst svolítð skemmtilegt að geta skipst á skoðunum svona og haldið utanum það svem okkur langar að gera, erum að fara gera eða erum búnar að gera. Ég ætla svo að henda upp myndasíðu líka þegar tími gefst til og henda þar inn einhverjum helling af myndum og þið verði svo líka ða vera duglegar að setja inn þar líka svo við getum allar átt myndir:)

Skilaboðin okkar þurfa ekkert að vera stíluð á eina frekar en aðra, eða allan hópinn, þetta má vera allt í bland:)

Sjáum hvað gerist um helgina, ég ætla vinna í þessu:)


P.S
Þurý mín, mér gengur svolítið ílla að finna handa þér flutningamenn....

fimmtudagur, júlí 06, 2006

3 kassar af bjór og singstar

Takk fyrir síðast Sigrún:) Afmælið hans Brynjars heppnaðist rosalega vel.
Mér líst vel á bloggsíðuna, kann samt voða lítið á þetta. Verð að fara fá mér ADSL...

mánudagur, júlí 03, 2006

testing einn tveir þrír.....