Jæja ákvað að skella inn myndum frá laugardeginum.....
mánudagur, maí 28, 2007
bogobliða i reykjavik
jæja þá er nú bara best að prófa hvort ég sé að verða eins tæknivædd og þið hinar. En héðan á klakanum er sko bara allt fínt að frétta. Sumarið bara næstum komið. Ég og Dröfn áttum alveg brilljant laugardag, rölltum laugarveginn og sátum úti á vegamótum. Þetta var bara alveg eins og að vera í útlöndum (betra ef ég miða við síðustu ferð þar sem ég lenti nú bara í snjóstormi). En þetta var brill ;-) ég var nefninlega allt í einu barnlaus og frjáls. Hefur ekki gerst í lengri tíma að ég sé bara að dúlla mér á laugardegi. Síðan hittumst við aftur um kvöldið og sötruðum nokkra bjóra og skipulögðum föstudaginn. Við erum semsagt búnar að setja niður matseðilinn og ákveða þema. Fórum á flug .. vona að þú veriðr ekki fúl sigrún mín ... ekki illa meint .. heat of the moment thing! En þemað á föstudagskvöldið er sem sagt - sumar fílingur - það á sem sagt að vera í litríkum sumarfötum og á bann lista eru svartar buxur... hehe verðum að reyna að hafa þetta svoldið ögrandi. En góða skapið er samt náttla það sem skiptir mestu máli.
Ég er sko komin í góðan fíling og hlakka til endurfundana
Endurlífgun 2 "the resurection"...
Þetta blogg er að verða soldið skondið fyrirbæri.
Ég er búin að fikta og fikta og senda ykkur hinum nýja boðsmiða til að taka þátt í hinu mikla spjalli sem á sér hér stað (eða þannig) og vona að allt hafi heppnast í þetta skiptið. Ef aftur á móti þið komist inná bloggið og getið bloggað hérna, vinsamlegast eyðið bara boðinu og haldi áfram mað skemmtilegu athugasemdirnar hérna. Ég er búin að breyta lúkkinu aftur og það er svooooo auðvellt að gera það sérstaklega ef þið viljið setja inn linka og annað. Eins er búið að loka á utanaðkomandi aðgang, þannig að nú eru það einungis við sem erum þátttakendur sem getum lesið röflið hérna. Þannig að "feel free " að vera persónulegar, það eru bara við hérna sem lesum þetta:)
Annars var ég að verða föðursystir í annað sinn, Ses og Bryndís eignuðust þennan knúsibolta í nótt 28/5. Þriðji fjöslkyldumeðlimurinn sem fagnar afmæli í maí;)
mánudagur, apríl 09, 2007
Páskar
Allt gott að frétta af stórfjölskyldunni. Við skelltum okkur í sumarbústað í Munaðarnesi um páskana. Ég sótti um bústað hjá stéttarfélaginu mínu og var mjög hissa að fá bústað. Þetta var fín afslöppun, pínulítill bústaður en með heitum potti. Við erum annars búin að klára 4 af þeim 6 páskaeggjum sem við keyptum og fengum gefins.
kærar kveðjur og gleðilega páska
Anna og fjölskylda
þriðjudagur, febrúar 27, 2007
endurlifgun?
Legg thad til ad her verdi fleiri nefndarfundir haldnir a næstunni:D Eg lofa ad vera ekki svona thunn alltaf;)
Vona ad vid getum sed okkur fært ad hafa meiri samskipti a næstunni herna a vefnum, mer finnst allavegana vodalega gaman ad heyra i ykkur tho ad ekkert serstakt se a dofinni.
Eg skal reyna setja fleiri myndir herna inn, en eg er bara ekki med myndir a vinnutolvunni og eg er ekki med tolvu heima hja mer...
Jæja vildi bara starta sma samrædum, hlakka til ad heyra i ykkur!
Kv SBS
mánudagur, desember 04, 2006
Kveðja frá London
Ég er orðin vel heit fyrir sex&city þemanu með kokteilunum og kjólunum. Enda mun auðveldara að koma jólakjólnum í ferðatöskuna heldur enn kúreka eða mexícana hattinum. Það eru líka allt of fá tilefni sem maður fær til þess að dressa sig upp í kjól þessa dagana. Væri nú gaman að hafa smá pakkaskipti líka og þá bara hafa pakkana líka pæjulega til að passa við þemað! Er bara orðin ansi spennt. Ætli þetta verði ekki bara hápunktur jólanna í ár :o)
Bis später,
EB
föstudagur, desember 01, 2006
Jólastemming á fullveldisdaginn
Svo eftir það er boðið upp á eplaskífur og jólaglögg. Ætla að segja pass í ár, fór í fyrra- yndisleg stemming. Ætla frekar að fara í jólaglöggið á morgun.
fimmtudagur, nóvember 30, 2006
þemað þann 29 des
Ótrúlega spennandi þemu sem þú fannst uppá Steinunn, mikið kannast ég við það að hugsa um allt annað en um lærdóm fyrir próf...
Varðandi Sex in the city, þá verð ég að segja að það hljómar geðveikt en ég á engan kjól...
Mexí-þemað er afar hentugt, hressleiki í fyrirrúmi ásamt suðrænum og svalandi margarítum...
Jólaglögg er í takvið tíðarandann og alltaf gaman, hátíðlegt og "true to the spirit of christmas". Er samt ekki viss um að ég vilji drekka mig eins fulla af jólaglöggi og ég get á margarítum... hehe
Bláa lónið er freistandi, en meira freistandi er að vera inni og hlýja sér við ofninn, sérstaklega ef við tökum uppá því að elda saman (ekki það að það einfaldi allt að sleppa matnum)...
oG svo er það Yatzi-ið. Það er náttúrulega bara snilld, klikkar aldrei!
Ég legg til að við kjósum um þetta og stefnum á brillíant kvöld með okkur öllum 6.
Ég kýs í eftirfarandi röð:
1)Sex and the city þema? Cosmopolitan drykkir og við allar dannaðar dömur í kvöldkjólum - nema Sigrún
2)Jólaglögg ? Allir koma með einn pakka og höfum pakkaskipti ( litlu jólin eftir á)
3)Mexícost þema ? Stawberry margaritur og við klæðum okkur í takt við það.
3)Ármótaþema - taka forskot á sæluna.
4)Bláa lónið, fá einhvern til að keyra og sækja okkur .....
Ekki nema við höfum bara blandaða þemu, eftir okkar eigin höfði!!
Gætum hisst um 20:00 og startað teitinu upp því frekar snemma?
Mig hlakkar strax til!!
þriðjudagur, nóvember 28, 2006
Læra, læra, læra
En þessari törn lýkur sem betur fer á miðvikudaginn næsta . Get ekki beðið : )
Bara langaði til að deila þessu með ykkur