mánudagur, desember 04, 2006

Kveðja frá London

Nú er kominn tími til að ég láti sjá mig á þessari síðu. Hér í London er ekkert orðið neitt svakalega jólalegt, enginn snjór eða kuldi og voða lítið skraut annars staðar en á Oxford Str. Ég er ekki einu sinni búin að setja upp aðventukransinn! Ég ætla samt að vinna í því að komast í jólaskap í vikunni og henda inn nokkrum jólalögum á iPodinn og baka eina sort áður en Steinunn mætir á svæðið á föstudag.

Ég er orðin vel heit fyrir sex&city þemanu með kokteilunum og kjólunum. Enda mun auðveldara að koma jólakjólnum í ferðatöskuna heldur enn kúreka eða mexícana hattinum. Það eru líka allt of fá tilefni sem maður fær til þess að dressa sig upp í kjól þessa dagana. Væri nú gaman að hafa smá pakkaskipti líka og þá bara hafa pakkana líka pæjulega til að passa við þemað! Er bara orðin ansi spennt. Ætli þetta verði ekki bara hápunktur jólanna í ár :o)

Bis später,
EB

föstudagur, desember 01, 2006

Jólastemming á fullveldisdaginn

Það er verið að kveikja á jólatrénu út í garði hjá mér. Ómur af jólalögum heyrist inn um gluggan hjá mér. Ég kíki út og öll börnin í blokkinn ganga í kringum jólatréið og syngja jólalög. Nú væri gaman að vera áhyggjulaus og njóta aðventunar.
Svo eftir það er boðið upp á eplaskífur og jólaglögg. Ætla að segja pass í ár, fór í fyrra- yndisleg stemming. Ætla frekar að fara í jólaglöggið á morgun.